Sunn

...

27.06.2007 22:21:34 / sunnan

Yfirlýsing

 

 

Hættið að kvarta og njótið sumarsins. Það ætla ég allavega að gera.

kv. Sunna sumarstelpa


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 18:22:10 / sunnan

Þessi dagur

 

Ææi, það er þessi dagur. Dagurinn sem ég er búinn að plana fyrirfram að vera rosalega dugleg að læra. En í staðinn er ég bara sofandi, í tölvunni, í símanum eða bara einfaldlega of löt. Ég ætlaði að læra í dag en sökum leti minnar og brjálaðs gærdags þá varð nú ekki mikið úr því.  Ég sofnaði bara yfir skólabókunum. Og svo finn ég ekkert betra að gera en að blogga. En það var gaman í gær!

Langt síðan ég hef bloggað. Gleðilega páska, gleðilegt sumar og ég skulda nokkrum ábyggilega afmæliskveðju!

 Prófin eru að koma. Náttúrufræðin stefnir í óefni, íslenskan líka (helvítis íslendingaþættir) og kannski stærðfræðin....Ææi, það reddast!

Ég fór á gusgus um daginn. Það var rosalegt, brjálað stuð og geðveikt gaman! Mikið var um glow sticks og glimmer þetta kvöld!

Þessu stikkorðakennda bloggi er hér með lokið, kv. Sunn :)


» 16 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 16:27:29 / sunnan

allt og ekkert

jæja, týpískt að daginn eftir að ég skrifaði síðasta blogg byrjaði að rigna og nokkrum dögum seinna að snjóa. Það er búið að vera ömurlegt veður og ég er sko fyrir löngu, löngu, löngu búin að pakka sólgleraugunum og sumarjakkanum! En ég nenni ekki að blogga um veðrið...

 Á þriðjudaginn var Grímuball kvennó og ég held að það sé öruggt að segja að þetta hafi verið skemmtilegasta ballið hingað til! Ég var sjóræningi. Vikan er líka búin að vera svona "karnival" vika með tilheyrandi uppákomum. Tónleikum á mánudaginn, ballinu á þriðjud. og kósíkvöld á miðvikudag. Ég fór nú reyndar ekki á kósíkvöldið. 

 

Miðvikudagurinn var leiðinlegasti og mest stressaði dagur í langan tíma. Vaknaði þreytt og mygluð klukkan hálf tíu þegar Sigríður hringdi í mig og skipaði mér að fara í skólann, hafði nú hugsað mér að sleppa fyrsta tíma fyrir hádegi og þá hefði ég getað mætt klukkan 1 í skólann! Það hefði verið næs en nei, ég fór nú í tímann og eftir skóla tóku við látlausar æfingar á píanóið og svo tónleikar í tónlistarskólanum og píanópróf. Úff! Síðan fór ég heim að læra fyrir náttúrufræðipróf.
 

Í kvöld ætla ég síðan að skella mér á gettu betur með mínum ágætu vinkonum þar sem mh og mk etja kappi. Ég giska á að mh vinni.

 

Kv. Sunna ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 14:37:31 / sunnan

Gott veður

JÁ, sólin er farin að skína og ég er komin í sumarskap! Er meira að segja búin að taka upp sólgleraugun þó ég sjáist nú ekki oft með þau. Vandamálið er bara að það er svo kalt. Það verður gaman þegar hitinn er farinn að hækka í stíl við sólskinið! Ójá! Engin úlpa í langan tíma og við taka sumarjakkar og jafnvel stuttermabolir! Er nú samt búin að komast að því að vorið er bara ansi skemmtilegur árstími því þá hefur maður allveg heilan helling að hlakka til! Jæja, langaði bara að lýsa með ykkur ánægju minni með veðrið undanfarna daga....

kv. Sunna í sólarskapi!:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 14:15:09 / sunnan

Tjarnardagarnir+ Árshátíðin

Jæja, ég er þegar búin að skrifa um bónus-tjarnardaginn minn (í blogginu fyrir neðan) svo ég geri það ekki. Tjarnardagur nr. 2 var skemmtilegur. Fór á einhvern tískufyrirlestur sem var fínt. HAHAHHAHAA konan sem hélt fyrirlesturinn var að tala um að sumum færi ekki vel að vera í ákveðnum litum og svona, mjöög fróðlegt allt saman, síðan sagði hún eftirfarandi:

 

Það fæst náttúrulega allt út í Ammmeríku (já, með áherslu á m-in) og þar sem ég rækta chiuwova hunda (kann ekki að skrifa þetta) fer ég stundum þangað að kaupa föt á þá. En það er nú bara þannig að hundurinn minn hún Paris Hilton er ekki eins og mamma sín sem er svo fín í rauðu, Paris bara getur alls ekki gengið í rauðu!

 

Hahaha það sprungu allir úr hlátri. En þessi kona veit nú allveg hvað hún var að tala um og sumt var ansi fróðlegt og skemmtilegt að vita. Það var samt eitt sem mér fannst hálfgert rugl, og það er svona hvað litirnir segja um þig, t.d. segir:

 

Fjólublár: Að þú sért með mikið vald

Brúnn: Var einhvern veginn þannig að það segir að þú sért ábyrgðarlaus eða eitthvað svoleiðis, allavega áttu aldrei að mæta í brúnu í atvinnuviðtöl

 

Gulur: já gulur var eitthvað sem mátti bara helst ekki klæðast, minnir að það hafi verið að þá væri eins og þú vissir bara ekkert í þinn haus.

 

Er smá búin að gleyma hvað litirnir sögðu og jú, víst voru það fleiri litir sem hún nefndi en minnið mitt gat bara ekki geymt allar þessar upplýsingar. Eftir fyrirlesturinn var ferðinni heitið í regnbogann þar sem að við fengum að sjá myndina pursuit of happiness. Hún er ágæt, ekki meistaraverk og ég efast nú um að ég nenni að horfa á hana aftur, en ágæt var hún samt.

Á Árshátíðardaginn sjálfan hittumst við um 10 leytið heima hjá Sindra, horfðum á árshátíðarmyndbandið á skjár1+, gæddum okkur á dýrindis bakkelsi og tilkynntum innanbekkjarkosningar. Síðan dreif ég mig heim í strætó tók mig til í miklu stressi, held að það sé vert að tilkynna að eftir þessa blessuðu strætóferð gekk allt á afturfótunum! Tók strætó niður í bæ þar sem Agnes og Sigríður pikkuðu mig upp og síðan ókum við til Lilju í fyrirpartýið. Jæja, það er svosem voða lítið að segja um þetta fyrirpartý, bara að það var fínt. Síðan kom rúta að sækja okkur til Lilju sem keyrði okkur í kvennó, þar beið okkur önnur rúta sem fór á Selfoss og svo tók við Árshátíðin sjálf!

Á Árshátíðinni var Helga Braga veislustjóri og Tómas R. Einarson og co. héldu uppi stemningunni í matnum með geðveikri dinner-tónlist. Maturinn var mjöög góður, sveppasúpa í forrétt (er samt ekki mikill aðdáandi svoleiðis) tandoori kjúklingur með risotto í aðalrétt og ísterta í eftirrétt sem var geðveik! Ég, Agnes og Sindri vorum svo heppin að Jónína vildi ekki sína svo við græddum extra köku! Eftir mat og skemmtiatriði tók við ballið sjálft sem ég held að sé öruggt að segja að var slappt! Ekki góður dj og Jet Black Joe er ekki dansiballhljómsveit að mínu mati. Ég fór heim með rútunni hálf tvö og vá, það var bara ekki síðra í rútunni en fyrsti klukkutíminn á ballinu.

Lengra verður þetta ekki í bili, ég er ósátt við að geta ekki sofið út, vaknaði svo grútmygluð klukkan 9:30 í morgun og ekkki sátt, reyndi að sofa lengur en allt kom fyrir ekki. Fór því á fætur og hressti mig við.

 

Ein spurning að lokum:

Hverjir ætla að slást í för mína og fara með mér á blonde Redhead?

 

Kv. Sunna syfjaða


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 16:39:39 / sunnan

Dagarnir líða

Árshátíðarvika Kvennó byrjuð og tjarnardagarnir gengnir í garð. Jæja, ég fékk nú ekki allt sem ég valdi en ekkert alltof slæmt heldur. Í dag var fyrsti dagurinn var förinni heitið í Bónus Smáratorgi frá kl. 12:30-15:30 og vann ég þar til styrktar krabbameinssjúkum börnum í þrjá klukkutíma við að taka vörur úr frysti og setja í frystinn frammi í búðinni. Það var ansi mikið púl, lyfti með köldum höndum ansi mörgum þungum kössum. En málstaðurinn var góður og það er það sem er fyrir öllu er það ekki?

Á morgun fer ég hins vegar upp í skóla á tískufyrirlestur og síðan í bíó. Spennandi!?!

Síðan er Árshátíðin á fimmtudaginn. Dagurinn byrjar hinsvegar með morgunpartý með bekknum heima hjá honum Sindra, síðan verður farið heim að fara í fínu fötin, svo er haldið í fyrirpartý hjá Ernu G. og svo er það rúta til Selfossar!

Annars verður þetta ekki mikið lengra hjá mér í bili, kv. Sunna

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 18:30:14 / sunnan

Mánuður!

Heill mánuður síðan ég bloggaði síðast, þetta var dálítið laangt hlé hjá mér, ansi langt. Og þar sem að það er svo langt, meira að segja komið nýtt ár þá er líklegast ekki við hæfi að óska fólki gleðilegs árs þar sem ég er ábyggilega búin að óska öllum sem lesa þetta gleðilegs árs nokkrum sinnum. Geri það nú samt, til vonar og vara. Gleðilegt ár! Það er heldur ekki við hæfi að gera ársannál fyrir árið 2006 þar sem að það er nú frekar "langt" liðið á árið 2007. Kem nú samt með smá yfirlitsstaðreyndir um árið 2006, sem var rosalega skemmtilegt ár (fyrir mig a.m.k) :

  • Árið 2006 tók ég stigspróf í píanó og er nú komin á framhaldsstig, það var mjöög erfitt og stressandi að æfa fyrir það!
  • Eignaðist ég nýtt píanó!!
  • Tók ég ansi strembin samræmd próf
  • Komst ég inn í kvennó
  • Byrjaði í menntaskóla og fór úr gamla h-bekknum í kópavogsskóla yfir í glænýjan bekk, 1FÞ
  • Eignaðist ég yndislega frænku og varð þar með föðursystir!
  • Fór ég til Danmerkur að hitta systur og frænku
  • Fór ég á marga skemmtilega tónleika m.a. Sigurrós á Klambratúni, Nick Cave, Sykurmolana og Airwaves!!
  • Kynntist allveg helling af nýju fólki og öðrum sem ég þekkti fyrir miklu betur!
Já, þetta er mjöög stutt útgáfa af 2006-ársannáli....hafði alltaf ætlað mér að gera rosa flott blogg með myndum og alles en ég var bara einfaldlega of löt og nennti bara ekki að blogga, þar til nú! Ég vona (og held ) að árið 2007 verði jafn gott og árið 2006. Það er allavega búið að vera gott hingað til!


Allavega, þetta var bara stutt blogg til að minna á að ég er ennþá virk á þessari síðu, bara kannski ekki jafn mikið og áður. Komment eru vel tekin, ef það er þá ennþá einhver sem kíkir á þessa síðu hahahha!

Takk fyrir mig, Sunna Seinbloggari 8|


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 18:29:59 / sunnan

Jólamontblogg

Kæra fólk! Ég vil óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!


Kær kveðja, Sunna!


Svo langaði mig svolítið að nota tækifærið og sýna öllum hversu fallega frænku ég á!



Saga Eldarsdóttir með vininum sínum honum Óla Birni.

Ég fór einmitt í gær og heimsótti hana (kom heim í gær frá Danmörku) og fékk að halda á henni og svona....hef bara aldrei á ævi minni séð svona sætt barn og ég hlakka til að hitta hana næst! Ef þið viljið sjá fleiri myndir af fegurðardísinni getið þið séð þær á sagaeldarsdottir.blogspot.com!

Takk fyrir mig í bili, lesið endilega jólakveðjuna mína hérna fyrir ofan. Gleðileg Jól allir saman. Þessu jólamontbloggi er hér með lokið. Bless. :haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 12:22:01 / sunnan

Saga

NÚ ER ÉG loksins orðin föðursystir og af því tilefni ákvað ég að blogga stutt blogg. Já, hún Saga Eldarsdóttir fæddist í gær, 17. desember. Ég er að bíða eftir myndum frá Eldari...hann er nú reyndar ábyggilega mjög upptekinn þessa dagana í barnastússi en ég vona að þær komi bráðlega. Hlakka svakalega mikið til að sjá litlu skvísuna. Smá svekk að hún kom daginn eftir að ég fór til Danmerkur en svona er það...sé hana bara á laugardaginn! Er nú búin að vera í Árósum síðan á Laugardaginn.Í gær var arkað á strikið á Árósum og verslað....keypti meðal annars 6 pör af eyrnarlokkum, buxur og nærföt. Ætlum aftur niður í bæ í dag, svo í kvöld klukkan 19:15 tökum við rútuna til Köben. En já, sendi kveðjur til allra á Íslandi og hlakka til að sjá ykkur, sérstaklega Sögu litlu.

kv. Sunna danmerkurfari og föðursystir með meiru!


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 13:29:25 / sunnan

Nú ríkir sko gleði!

Vildi bara láta ykkur vita að ég er BÚIN í prófunum og hér ríkir mikil gleði núna á bæ!!!! Heyrði einu sinni mottó eða jah...sniðuga setningu sem hljómaði svona: "Alltaf að hafa eitthvað til að hlakka til, þá verður lífið skemmtilegra!" Veit nú ekki hvort hún var orðuð nákvæmlega svona en svona var allavega boðskapurinn. Jú, ég hef nú eitthvað að hlakka til enda er líf mitt einstaklega gott núna:

* Litla krílið! Ójá, það verður fjör að verða frænka!
*Danmerkurferð! Á Laugardaginn verður stigið upp í flugvél og stefnan tekin á Danmörk!!
*Jólin!  Já sá sem segir að hann hlakki ekki pínu ponsu til jólanna er að ljúga!
*Áramótin! Þá verður fjör!
*Vinnan...án gríns ég hlakka til að fara í vinnuna á eftir...Það er bara svo langt síðan ég hef farið í vinnuna
*Að hitta Önnu aftur eftir langa bandaríkjadvöl er ferlega mikil tilhlökkun og erfið bið!

Jæja, en fleiri hafa nú ábyggilega eitthvað að hlakka til líka...postið komment og látið mig vita.

Annars bíð ég bara eftir að litla krílið láti loksins sjá sig! Vona og vona og vona að það verði áður en ég fer en er frekar svartsýn á það.

Lengra verður þetta ekki í bili....hlakkið til, kv. Sunna

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 10:57:09 / sunnan

Jólin nálgast

 eitt af því sem tilheyrir jólaundirbúningnum eru jólaprófin. Ég er búin að taka tvö, dönsku og stafsetningu og á fjögur eftir, ísl, stæ, sögu og ensku. Mér hefur bara gengið vel held ég en erfiðustu prófin eru eftir, stærðfræði og saga. Ég bara verð að fá hátt á stærðfræðinni....þó að ég sé nú frekar svartsýn á það! Það er samt svo erfitt að vakna "snemma" og byrja að læra...vegna "óútskýranlegra" hluta seinkast það alltaf "smá". Ég ætla nú að vera dugleg í dag, þar sem íslenskan er á morgun....ég byrjaði nú reyndar smá í gær að rifja upp og mun halda ótrauð áfram í dag.

En nú eru aðeins 9 dagar þangað til að ég fer til Köben! Og vá, ég er farin að hlakka mikið til! Að hitta systurina og  frænkuna en ekki síst að fara í tívolí, versla (það er sko komin urban outfitters í  köben!) og upplifa jólastemninguna í denmark! Ja, ja! Það lítur út fyrir að ég taki lestina ein til Árósa frá Kaupmannahöfn en það er nú lminnsta málið! Það reddast allt á endanum! (hugsunarháttur sem margir stressaðir fyrir jólin ættu kannski að tileinka sér??)

Jæja, á morgun 8. des á litla krílið að fæðast samkvæmt staðfestum tölum en auðvitað gæti það alltaf klikkað, hún fæðist ábyggilega svona 4-5 dögum seinna. Tilhlökkunin er nú "svolítið" farin að segja til sín...það verður nú rosa notó að hafa eitt lítið kríli í fjölskyldunni.

Ætti maður kannski að fara að snúa sér að próflestrinum?? kannski :/

en næst þegar þið heyrið frá mér verða prófin ábyggilega búin og ég á leið til köben!

kv. Sunna

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 18:31:50 / sunnan

.....spurningalisti....

1. Fullt nafn: 2. Aldur: 3. Single or Taken: 4. Uppáhalds bíómynd: 5. Uppáhalds lag: 6. Uppáhaldshljómsveit: 7. Dirty or Clean: 8. Tattoo eða göt: 9. Þekkjumst við persónulega? 10. Hver er tilgangurinn með lífinu? 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum? 12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli? 13. Besta minningin þín um okkur? 14. Myndir þú gefa mér nýra? 15. Segðu eitthvað skrýtið um þig: 16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik? 17. Getum við hist og bakað köku? 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega? 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig? 20. Finnst þér ég góð manneskja? 21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið? 22. Finnst þér ég aðlaðandi? 23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari? 24. Í hverju sefuru? 25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla? 26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér? 27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera? 28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

» 12 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 18:37:48 / sunnan

Snjókorn falla

Já snjórinn er nú aldeilis kominn. Vá það er allt hvítt úti. Vona að ég fái myndavélina sem ég gleymdi heima hjá Höddu fljótlega. Jæja, í gær var tekið kröftulega á því í snjónum hjá 1FÞ. Þar sem að ég var kannski ekki á hentugustu skónum, þeir voru með svaðalega sleipum sólum, þá gerði maður nokkra skandala og hefur nælt sér í eitt stykki málshátt hjá Agnesi og Sigríði. Hann hljómar svona: ég ætla ekki að taka sunnuna á þetta. Það segir maður ef maður vill ekki detta á rassinn en maður gæti nú allveg sagt: jú, eigum við ekki bara að taka sunnuna á þetta! Sem væri þá að viðkomandi vilji endilega detta á rassinn. Ég mætti hinsvegar galvösk í góðum snjóstígvélum með góðum sóla í skólann í dag.
Það er allveg ótrúlegt hvað er hægt að gera á veturna. Það er hægt að labba þvert yfir heila tjörn...ótrúlegt. Síðan er líka hægt að vera lúmskur og kasta snjóboltum í þá sem manni líkar ekki við, mæli samt með því að það sé gert í leyni...annars áttu eftir að finna fyrir hefndinni, jú og auðvitað er alltaf gaman að kasta snjó í fólk almennt, maður getur búið til snjókalla, snjóhús og hátæknileg snjóvirki, gert snjóengla, rennt sér á sleða, farið á skíði eða snjóbretti og með heitu vatni, þolinmæði og allmiklum tíma er líka hægt að útbúa sitt eigið skautasvell út í garði. já, og allt þetta er ekki hægt að gera á sumrin!
Annars er ekkert smá mikið að gera hjá mér framundan....mun ábyggilega ekki ná að gera helminginn af því sem ég taldi upp áðan. Prófin nálgast í skólanum og jú, auðvitað eru líka próf í tímum. Síðan er það tónlistaskólinn, þar er ég nú allveg að drukkna. Var afhent um daginn 12 síðna lag sem ég á að vera með tilbúið núna fljótlega svo að ég gæti spilað það með svokallaðri kammersveit+5-6 verk sem ég er með fyrir utan það. Jæja, ég get nú huggað mig við það að 16. des verður flogið til Danmerkur og mér skilst að Viktor&Rolf séu með nýja línu í h&m. Ég er búin að skoða þau stuttlega á netinu og þau eru ekkert smá flott. Vona bara að það sé ekki allt búið þegar ég kem þangað.
Annars hafði ég nú ekki hugsað mér að hafa þetta mikið lengra...Hvet bara alla til þess að nýta sér snjóinn eins og þeir geta!

-Sunna-


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 19:09:21 / sunnan

Brrr

Jæja, svo ég hef ekki bloggað lengi...Þá kemur bara eitt flott núna!
það er aðeins 31 dagur þangað til að ég mun yfirgefa klakann og taka á flug til Danmerkur! Ójeah! Þar hef ég hugsað mér að versla ansi mikið skal ég segja ykkur. Ég ætla að reyna að taka að mér eins mikla vinnu og ég get og treysti mér til núna í nóvember (jahh...skólinn gerir nú ýmsar kröfur) svo ég fái vel útborgað. Ég mun heldur ekki vinna mikið um jólin þar sem að beint eftir prófin fer ég út og ég kem heim á þorláksmessu þannig að....
Skólinn er jah....það er alltaf jafn mikið að gera plús það að maður er farinn að fá smá hnút í magann yfir jólaprófunum. Ætli það verði ekki ansi busy framundan!
Sunnudagaskvöldin mín fram undan eru öll bókuð. Bókuð, bókuð, bókuð! Fyrir kaffihúsaferð með Sigríði og Agnesi á Babalú! Það er allveg ótrúlegt hvað okkur dettur í hug á babalú, þetta er nefnilega ansi kósí og skemmtilegur staður.
Heyrðu síðan styttist í að litla kellan fari að koma í heiminn....hún er sett á 8. des en eins og allir vita stenst það ekki alltaf. Ég er allavega búin að panta hana fyrir 16. des svo að ég verði ekki farin til damnerkur áður en hún kemur!
Á laugardaginn hef ég ákveðið að bjóða nokkrum vel völdum píum heim til mín í smá kósílegheit! Spurning hvort við eigum að elda eða bara nýta okkur heimsendingaþjónustu hinna ýmsu veitingastaða?
Annars er maður nú búinn að fá smá h-bekkjarfráhvörf, það er svo skrýtið að hitta krakkana ekki á hverjum degi...
Ég fékk bækling frá IKEA í dag um jólin. Úfffff! Hver er ekki þegar orðinn leiður á jólunum...það er langt í þau...meira en mánuður og allt er orðið kreisí !?!

Jæja, kv. Sunna







» 9 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 19:31:56 / sunnan

einn góður brandari

svona er hann:

    það var einu sinni maður sem hélt að hann væri maður. Eitt sinn hitti hann konu sem spurði hvað hann væri.
Maðurinn sagði: Ég er hani!
Konan: Ha?
Maðurinn: Ni...


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Dagsetning
9. febrúar 2010