29.11.2006 18:31:50 / sunnan
1. Fullt nafn: 2. Aldur: 3. Single or Taken: 4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag: 6. Uppáhaldshljómsveit: 7. Dirty or Clean: 8.
Tattoo eða göt: 9. Þekkjumst við persónulega? 10. Hver er
tilgangurinn með lífinu? 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli? 13. Besta
minningin þín um okkur? 14. Myndir þú gefa mér nýra? 15. Segðu
eitthvað skrýtið um þig: 16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri
veik? 17. Getum við hist og bakað köku? 18. Hefuru heyrt kjaftasögu
um mig nýlega? 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig? 20. Finnst
þér ég góð manneskja? 21. Myndir þú keyra með mér hringinn í
kringum landið? 22. Finnst þér ég aðlaðandi? 23. Hverju myndiru
vilja breyta í mínu fari? 24. Í hverju sefuru? 25. Kæmiru í
heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla? 26. Myndir þú koma á
stefnumót ef ég myndi bjóða þér? 27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann,
hvað myndum við gera? 28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég
geti fyllt þetta út?
»
21.11.2006 18:37:48 / sunnan
Já snjórinn er nú aldeilis kominn. Vá það er allt hvítt úti. Vona
að ég fái myndavélina sem ég gleymdi heima hjá Höddu fljótlega.
Jæja, í gær var tekið kröftulega á því í snjónum hjá 1FÞ. Þar sem
að ég var kannski ekki á hentugustu skónum, þeir voru með svaðalega
sleipum sólum, þá gerði maður nokkra skandala og hefur nælt sér í
eitt stykki málshátt hjá Agnesi og Sigríði. Hann hljómar svona: ég
ætla ekki að taka sunnuna á þetta. Það segir maður ef maður vill
ekki detta á rassinn en maður gæti nú allveg sagt: jú, eigum við
ekki bara að taka sunnuna á þetta! Sem væri þá að viðkomandi vilji
endilega detta á rassinn. Ég mætti hinsvegar galvösk í góðum
snjóstígvélum með góðum sóla í skólann í dag.
Það er allveg ótrúlegt hvað er hægt að gera á veturna. Það er hægt
að labba þvert yfir heila tjörn...ótrúlegt. Síðan er líka hægt að
vera lúmskur og kasta snjóboltum í þá sem manni líkar ekki við,
mæli samt með því að það sé gert í leyni...annars áttu eftir að
finna fyrir hefndinni, jú og auðvitað er alltaf gaman að kasta snjó
í fólk almennt, maður getur búið til snjókalla, snjóhús og
hátæknileg snjóvirki, gert snjóengla, rennt sér á sleða, farið á
skíði eða snjóbretti og með heitu vatni, þolinmæði og allmiklum
tíma er líka hægt að útbúa sitt eigið skautasvell út í garði. já,
og allt þetta er ekki hægt að gera á sumrin!
Annars er ekkert smá mikið að gera hjá mér framundan....mun
ábyggilega ekki ná að gera helminginn af því sem ég taldi upp áðan.
Prófin nálgast í skólanum og jú, auðvitað eru líka próf í tímum.
Síðan er það tónlistaskólinn, þar er ég nú allveg að drukkna. Var
afhent um daginn 12 síðna lag sem ég á að vera með tilbúið núna
fljótlega svo að ég gæti spilað það með svokallaðri kammersveit+5-6
verk sem ég er með fyrir utan það. Jæja, ég get nú huggað mig við
það að 16. des verður flogið til Danmerkur og mér skilst að
Viktor&Rolf séu með nýja línu í h&m. Ég er búin að skoða
þau stuttlega á netinu og þau eru ekkert smá flott. Vona bara að
það sé ekki allt búið þegar ég kem þangað.
Annars hafði ég nú ekki hugsað mér að hafa þetta mikið
lengra...Hvet bara alla til þess að nýta sér snjóinn eins og þeir
geta!
-Sunna-
»
15.11.2006 19:09:21 / sunnan
Jæja, svo ég hef ekki bloggað lengi...Þá kemur bara
eitt flott núna!
það er aðeins 31 dagur þangað til að ég mun yfirgefa
klakann og taka á flug til Danmerkur! Ójeah! Þar hef ég hugsað mér
að versla ansi mikið skal ég segja ykkur. Ég ætla að reyna að taka
að mér eins mikla vinnu og ég get og treysti mér til núna í
nóvember (jahh...skólinn gerir nú ýmsar kröfur) svo ég fái vel
útborgað. Ég mun heldur ekki vinna mikið um jólin þar sem að beint
eftir prófin fer ég út og ég kem heim á þorláksmessu þannig
að....
Skólinn er jah....það er alltaf jafn mikið að gera
plús það að maður er farinn að fá smá hnút í magann yfir
jólaprófunum. Ætli það verði ekki ansi busy framundan!
Sunnudagaskvöldin mín fram undan eru öll bókuð. Bókuð,
bókuð, bókuð! Fyrir kaffihúsaferð með Sigríði og Agnesi á Babalú!
Það er allveg ótrúlegt hvað okkur dettur í hug á babalú, þetta er
nefnilega ansi kósí og skemmtilegur staður.
Heyrðu síðan styttist í að litla kellan fari að koma í
heiminn....hún er sett á 8. des en eins og allir vita stenst það
ekki alltaf. Ég er allavega búin að panta hana fyrir 16. des svo að
ég verði ekki farin til damnerkur áður en hún kemur!
Á laugardaginn hef ég ákveðið að bjóða nokkrum vel
völdum píum heim til mín í smá kósílegheit! Spurning hvort við
eigum að elda eða bara nýta okkur heimsendingaþjónustu hinna ýmsu
veitingastaða?
Annars er maður nú búinn að fá smá h-bekkjarfráhvörf,
það er svo skrýtið að hitta krakkana ekki á hverjum degi...
Ég fékk bækling frá IKEA í dag um jólin. Úfffff! Hver
er ekki þegar orðinn leiður á jólunum...það er langt í þau...meira
en mánuður og allt er orðið kreisí !?!
Jæja, kv. Sunna
»
05.11.2006 19:31:56 / sunnan
svona er hann:
það var einu sinni maður sem hélt að hann væri
maður. Eitt sinn hitti hann konu sem spurði hvað hann væri.
Maðurinn sagði: Ég er hani!
Konan: Ha?
Maðurinn: Ni...
»